mobile navigation trigger mobile search trigger
13.10.2023

Fjarðabyggð hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Fjarðabyggð hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi með Creditinfo, Deloitte, forsætisráðuneytinu, Pipar\TBWA, RÚV, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá.

Fjarðabyggð hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar, Við töpum öll á einsleitninni - Jafnrétti er ákvörðun, var haldin við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 12. október. Þar hlutu 11 sveitarfélög, 22 opinberir aðilar og 56 fyrirtæki viðurkenningu. Á árinu 2023 bættust við 31 nýr þátttakandi í hóp þeirra aðila sem taka þátt í Jafnvægisvoginni.

Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til ellefu sveitarfélaga, tuttugu og tveggja opinberra aðila og  fimmtíu og sex fyrirtækja úr hópi þeirra 239 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu.

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði.

„Það hefur verið gaman að fylgjast með Jafnvægisvoginni stækka undanfarin ár og jafnréttismál verða að mikilvægu forgangsmáli hjá okkar þátttakendum. Þátttakendur taka stoltir við viðurkenningu og hafa verið duglegir að vekja athygli á jafnréttismálum innan sinna vinnustaða með ýmsum hætti. Þrátt fyrir það eru konur einungis 21% framkvæmdastjóra í atvinnulífinu hér á landi og 24% séu stjórnendur stofnana og sveitafélaga tekin með. Þetta hlufall hefur lítið haggast á undanförnum árum líkt og sýnt var fram á í þeim erindum sem flutt voru á ráðstefnunni” að sögn Bryndísar Reynisdóttur verkefnastjóra Jafnvægisvogarinnar.

Jafnrétti hefur bein áhrif á umhverfið

Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Lundurinn er staðsettur við aðalinnganginn í Heiðmörk, Vífilsstaðamegin, og er það fyrsta sem fólk sér þegar það gengur inn í Heiðmörk. Valdar voru margar tegundir af trjám sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin er að stuðla að. Í ár verða gróðursett 89 tré eitt fyrir hvern viðurkenningarhafa árið 2023 og verður þá búið að setja niður samtals 262 tré í Jafnréttislundinum á síðustu 4 árum. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.

Aðgengileg og skýr framsetning upplýsinga

Jafnvægisvogin heldur úti mælaborði sem er ætlað að halda utan um tölfræðilegar upplýsingar um jafnrétti. Þannig er hægt að tryggja aðhald og sýna stöðuna eins og hún er hverju sinni. Í mælaborði Jafnvægisvogarinnar koma fram allar helstu upplýsingar um stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi, svo sem kynjahlutföll stofnenda fyrirtækja, framkvæmdastjóra og stjórna. Þar má einnig finna upplýsingar um kynjahlutföll við brautskráningar úr háskólum, stöðu kynjanna innan atvinnugreina og GemmuQ kynjakvarðann fyrir skráð félög á markaði. Í mælaborðinu sem að Creditinfo, Deloitte og Jafnvægisvogarráðið hafa þróað eru upplýsingarnar gerðar aðgengilegar á einfaldan og skýran hátt.

Bættist í hóp fyrirtækja og sveitarfélag sem sjá sér hag í að vinna með Jafnvægisvoginni

Mikill vilji hefur verið hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum að vinna að jafnréttismálum þegar kemur að æðstu stjórnendum. Þátttakendur Í Jafnvægisvoginn eru orðnir 239 talsins.

Heimasíða Jafnvægisvogarinnar má nálgast hér

Fréttatilkynning_Jafnvægisvogarinnar 2023

Fleiri myndir:
Fjarðabyggð hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
Fjarðabyggð hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Frétta og viðburðayfirlit