mobile navigation trigger mobile search trigger

HOPPSA BOMM! Stefnumót um framtíð skíðasvæðanna á Austurlandi

08.04.2024 - 08.04.2024

Klukkan 13:00-15:30

Skíðasvæðin okkar í Stafdal og í Oddsskarði eru framúrskarandi góð, hvort á sinn hátt og saman mynda þau sterka heild sem býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Mikilvægt er að vinna áfram að uppbyggingu þeirra og góð aðstaða til skíðaiðkunar af ýmsu tagi verði tryggð fyrir íbúa Austurlands og gesti.

HOPPSA BOMM! Stefnumót um framtíð skíðasvæðanna á Austurlandi
Þann 8. apríl ætlum við að stefna saman fólki í fundarsal Berjaya Hotels á Egilsstöðum til að ræða framtíðarsýn fyrir skíðasvæðin. Fulltrúar frá ferðaþjónustunni, sveitarfélögunum og fyrirtækjum verða með örerindi og í framhaldinu munum við vinna og spjalla saman um þetta hagsmunamál okkar allra. Við ætlum að ræða þýðingu svæðanna, framtíðarsýnina, samstarfsmöguleikana, markaðssetninguna og hvernig hægt sé að byggja þau upp til framtíðar svo þau verði með tímanum ekki einungis öflugir seglar fyrir ferðaþjónustuna heldur líka ómetanleg lífsgæði fyrir íbúa Austurlands.
MÓTUM FRAMTÍÐINA SAMAN
Mótun framtíðarsýnar fyrir skíðasvæðin er mikið hagsmunamál fyrir samfélagið á Austurlandi. Þannig er hún mikilvæg fyrir ferðaþjónustuna á Austurlandi sem hefur verið í mikilli sókn á síðustu árum. Frekari þróun svæðanna og öflug markaðssetning er forsenda þess að hægt sé að draga að fleiri gesti yfir lengri tíma ársins þannig að Austurland verði heilsársáfangastaður á allra næstu árum.
Öflugar skíðamiðstöðvar eru líka hagsmunamál fyrir samfélagið í heild sinni. Í þeim eru fólgin gríðarleg lífsgæði fyrir fólk sem nýtur þess að stunda útivist og hafa þær því ótvírætt aðdráttarafl fyrir fólk sem vill setjast að í landshlutanum okkar og nota útivistartækifærin sem stórbrotin náttúra Austurlands hefur upp á að bjóða. Öflug skíðasvæði hvetja til hreyfingar og samskipta ólíkra aldurshópa, auka samheldni og gera lífið okkar innihaldsríkara og skemmtilegra.
Það er því mikið í húfi fyrir okkur öll!
Frekari upplýsingar um dagskrá fundarins mun birtast á næstu dögum en ykkur er óhætt að taka daginn frá. Við lofum að hann verður bæði gagnlegur og skemmtilegur. Öll eru velkomin og boðið verður upp á léttar veitingar. 

Frétta og viðburðayfirlit