mobile navigation trigger mobile search trigger
17.10.2017

Kuldaboli 2017

Dagana 14.-15. október fór fram ungmennahátíðin Kuldaboli. Eins og vanalega var unglingum úr 8. – 10. bekk af öllu Austurlandi boðið að taka þátt.

Kuldaboli 2017
Ungmenni í listasmiðju á Kuldabola

Aðalmarkmiðið með Kuldabola er að krakkar kynnist innbyrðis, prófi nýjar tómstundir og skemmti sér saman á heilbrigðan máta. Í þetta sinn tóku um 270 ungmenni þátt.

Á meðal þess sem var boðið upp á í smiðjunum þetta árið voru fræðslusmiðja um samfélagsmiðla, ratleikur, golf, kassaklifur, listasmiðja og spurningakeppni. Smiðjurnar gengu mjög vel fyrir sig og frábært að sjá hvað ungmennin voru dugleg að prófa nýja hluti og takast á við spennandi áskoranir.

Eftir að smiðjunum lauk var boðið upp á risahamborgaraveislu. Grillgengið stóð sig venju samkvæmt frábærlega.

Vegna veðurs var ákveðið að hætta við varðeldinn sem vanalega hefur verið á laugardagskvöldinu, en það kom ekki að sök, þar sem slegið var upp tónleikum á sviði sem búið var að koma fyrir inn í Fjarðabyggðarhöll. Það var hinn eini sanni Andri Bergmann sem mætti á svæðið og hélt uppi stuðinu. Krakkarnir tóku vel undir með Andra og sungu hástöfum.

Þegar Andri hafði lokið sér af tók við kvöldskemmtun með hinum landsþekktu skemmtikröftum, Audda og Steinda jr. Sungu þeir nokkur lög fyrir hópinn, sögðu brandara og létu krakkana fara í leiki, til að mynda smökkuðu nokkur hress ungmenni hinn geysivinsæla „ógeðisdrykk“ sem þeir félagar blönduðu á sviðinu. Þegar þeir Auddi og Steindi höfðu lokið sér af óskuðu fjölmörg ungmenni eftir því að fá mynd af sér með þeim köppum, sem þeir urðu svo sannarlega við.

Milli 23:00 og 00:00 var svo öllum boðið í skúffuköku fyrir háttinn, þó vissulega hafi fæstir farið í háttinn að köku lokinni. Tónlistin fékk að óma til kl. 01:00 en ró var ekki komin á hópin fyrr en löngu seinna.

Að mati starfsmanna félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar tókst hátíðin ljómandi vel og við heyrum ekki annað en að ungmennin hafi skemmt sér vel. Það er nefnilega okkar einlæga von að hátíðin skilji sem mest eftir sig, hafi bæði forvarnargildi og myndi sterk tengsl milli ungmenna um allt Austurland.

Okkur er einnig skylt að taka fram að margar hendur koma að svona hátíð. Þakka ber öllum þeim sem lögðu hönd á plóg og sérstaklega þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem komu og aðstoðuðu okkur. Ekki ber síst að þakka öllum ungmennunum sem voru sér og hátíðinni til sóma.  Alcoa hefur verið geysiöflugur bakhjarl Kuldabola undandarin ár og hefur fyrirtækið hjálpað til við að halda verðinu niðri fyrir ungmennin. Takk kærlega fyrir okkur!

Með bestu kveðju
Starfsfólk félagsmiðstöðvanna í Fjarðabyggð

Frétta og viðburðayfirlit