mobile navigation trigger mobile search trigger
30.04.2018

Ruslið okkar, tökum það upp!

Svokallað “Plokk” hefur undanfarið átt æ meiri vinsældum að fagna. Með “plokki” er átt við að tína upp rusl á förnum vegi á meðan gengið er eða skokkað.

Ruslið okkar, tökum það upp!
Ruslið okkar, tökum það upp!

“Plokk” er ákaflega umhverfisvæn iðja svo ekki sé minnst á hve heilsusamleg hún er. Nú býður Fjarðabyggð þeim íbúum sem vilja “plokka” að fá til láns plokkarastafi/ruslgreip og fjölnotapoka – í þjónustumiðstöðvum byggðakjarnanna. Einnig ætla starfsmenn þjónustumiðstöðva Fjarðabyggðar að hirða upp það rusl sem er búið að tína í pokana. Að lokinni tínslu þarf bara að láta vita af pokunum í síma 470-9000.

Hvað þarf að gera:

  1. Ná í poka og plokkarastaf í þjónustumiðstöðina.
  2. Plokka, plokka, plokka …….. og plokka.
  3. Safna saman ruslinu á einn stað og láta þjónustumiðstöðina vita hvar ruslið skal sótt.

Á heimasíðu Landverndar má síðan skrá sig til leiks í  á hreinsunarátakið „Hreinsum Ísland“. Hópar og einstaklingar er hvattir til að skrá sig til leiks og skipuleggja sína eigin hreinsun og minnka notkun plastumbúða. Hægt er að skrá sig hér: http://landvernd.is/hreinsumisland

Íbúar Fjarðabyggðar, allir sem einn, tökum þátt og tínum upp rusl – Förum út og „Plokkum“.

Frétta og viðburðayfirlit