mobile navigation trigger mobile search trigger
10.04.2024

Staða slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns hjá slökkviliði Fjarðabyggðar

Slökkvilið Fjarðabyggðar auglýsir laust starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns til starfa á slökkvistöðinni að Hrauni á Reyðarfirði. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga og slökkvistörf. Við leitum að áhugasömum aðila sem leggur metnað í faglegt og gott starf þar sem traust og samheldni ríkir.

Helstu verkefni:

  • Slökkvistörf
  • Sjúkraflutningar
  • Þátttaka í æfingum og þjálfun annarra viðbragðsaðila.
  • Umhirðu húss, tækja og búnaðar og annarri þeirri vinnu er fellur til á slökkvistöð.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001, m.a.
  • Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið.
  • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.

Að auki þurfa umsækjendur að:

  • Standast læknisskoðun og þrekpróf.
  • Hafa jákvætt hugarfar.
  • Hafa framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að hafa á sér gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
  • Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur

Starfslýsing slökkviliðs og sjúkraflutningsmanna 

Umsókn þarf að fylgja: Prófskírteini, læknisvottorð, ökuferilsskrá, ljósrit af ökuskírteini, almenn ferilsskrá og kynningarbréf. Umsækjendur eru beðnir um kynna sér inntökuskilyrði í starf í slökkviliðinu á síðunni https://www.fjardabyggd.is/Media/inntokuskilyrdi1.pdf. Kröfur um viðbragð setja skorður á búsetu innan ákveðinnar fjarlægðar frá slökkvistöð.

Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem allra fyrst.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér.

Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2024.

Nánari upplýsingar veitir Júlíus Albert Albertsson slökkviliðsstjóri, julius@fjardabyggd.is eða í síma 470 9081.

Frétta og viðburðayfirlit