Sumarstarfsmenn, 18 ára og eldri, vinna frá 15. maí til lok ágúst mánaðar eða samkvæmt samkomulagi. Vinnutími 8 klst./dag, laun skv. launaflokki 117 í kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Störf sumarstarfsmanna á þjónustumiðstöðvum Fjarðabyggðar eru ýmis umhverfisverkefni sem gróflega geta flokkast í tvo flokka:
- Grófvinna - sláttur með orfi, undirbúningur fyrir malbikun og hellulögn, o.fl.
- Fínvinna - undirbúningur og viðhald blóma- og runnabeða, plöntun blóma og trjáa o.fl.
*Ef til yfirvinnu kemur, 16 ára og eldri, er það valfrjálst og samkvæmt verkefnastöðu og samkomulagi hverju sinni.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2017.