mobile navigation trigger mobile search trigger
16.04.2024

Trommukennari við Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar

Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar óska eftir að ráða trommukennara frá og með 1. ágúst 2024 skólaárið 2024-2025.

Í Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar eru um 110 nemendur. Kennsla fer fram að mestu á skólatíma. Tónlistarskólinn býr að góðri aðstöðu og er til húsa í sama húsnæði og grunnskólarnir á Eskifirði og á Reyðarfirði. Gott samstarf er við grunnskólana og góður starfsandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla á trommur
  • Möguleiki á kennslu á fleiri hljóðfæri ef áhugi er fyrir hendi
  • Möguleiki á tónfræðikennslu

Menntun og hæfniskröfur

  • Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð menntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í hljóðfæraleik
  • Reynsla af kennslu eða menntun í uppeldisfræði
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð

Starfslýsing tónlistarkennara

Staðan er laus frá 1. ágúst 2024. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ/FÍH

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí

Hvetjum eintaklinga af öllum kynjum að sækja um.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Upplýsingar veitir skólastjóri Alda Rut Vestmann, netfang alda@skolar.fjardabyggd.is

Frétta og viðburðayfirlit