mobile navigation trigger mobile search trigger
07.11.2017

Vetrarstarf félags eldri borgara á Norðfirði

Í haust gerðu Fjarðabyggð og Félag eldri bogara á Norðfirði með sér samning um að félagið taki að sér að tryggja öldruðum í Neskaupstað aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi. Félagið stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í Sigfúsarhúsi og býður íbúa á öllum aldri velkomna.

Vetrarstarf félags eldri borgara á Norðfirði

Vetrarstarfið hófst formlega 13. september sl. og er dagskrá vetrarins sem hér segir:

Mánudagar: Boccia í Sigfúsarhúsi kl. 13:00

Þriðjudagar: 1. Stólaleikfimi í Sigfúsarhúsi kl. 11 með Vilborgu Stefánsdóttur 2. Félagsvist í Sigfúsarhúsi kl 14:00

Miðvikudagar: Opið hús 13:30 - 16:00. Spjall, bridge, vist, handavinna og kaffi

Fimmtudagar: Sögustund kl. 16.00 - 17:00 mð Þórði Jóhannssyni

Föstudagar: Stólaleikfimi í Sigfúsarhúsi kl. 11.00 með Vilborgu Stefánsdóttur

Aðrar uppákomur og ferðir verða auglýstar sérstaklega og verða tilkynntar bréflega til félagsmanna. 

Frétta og viðburðayfirlit