Laugardaginn 11.nóvember verða Norðfjarðargöng vígð við hátíðlega athöfn. Af því tilefni verður mikið um að vera í Fjarðabyggð alla helgina og allir ættu að getað fundið eitthvað við sitt hæfi.
Fimmtudaginn 2. nóvember 2018 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2018 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2019-2021.
Í haust gerðu Fjarðabyggð og Félag eldri bogara á Norðfirði með sér samning um að félagið taki að sér að tryggja öldruðum í Neskaupstað aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi. Félagið stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í Sigfúsarhúsi og býður íbúa á öllum aldri velkomna.
Laugardaginn 28. október frá 11:00 – 15:30 geta þeir hunda og kattaeigindur sem misstu af fyrri dögum mætt með dýrin sín í þjónustumiðstöðvarnar í hreinsun.
í kvöld kl. 20:00 verður haldinn íbúafundur í sal Grunnskóla Reyðarfjarðar. Á fundinum munu bæjarstjóri, bæjarráð og sviðstjórar sveitarfélagsins fara yfir stöðu mála í sveitarfélaginu og svara spurningum fundargesta.
Í dag skrifuðu þeir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Friðþjófur Tómasson, formaður félagsins Vinir Valhallar, undir samning þess efnis að félagið taki að sér umsjón með félagsheimilinu Valhöll á Eskifirði.
Laugardaginn 4. nóvember nk. verður Menningarmessa Fjarðabyggðar 2017 haldin. Menningarmessan í ár er hugsuð sem vettvangur fyrir grasrótina í menningarstarfsemi í Fjarðabyggð til að koma saman, líta yfir farinn veg, meta stöðu mála og deila hugmyndum.
Laugardaginn 11. nóvember verða Norðfjarðargöng vígð við hátíðlega athöfn. Af því tilefni vinnur Fjarðabyggð, í samstarfi við Vegagerðina, að því að setja saman dagskrá fyrir þessa helgi til að fagna þessum merku tímamótum. Ætlunin er að hafa dagskrána sem veglegasta þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi.
Í kvöld stendur fjölskyldusvið Fjarðabyggðar í samvinnu við Forvarnir Ehf. fyrir fræðslufundi um streitu og streituvarnir. Fræðslufundurinn fer fram í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og hefst kl. 20:00
Sjónvarpsstöðin Hringbraut sýndi í síðustu viku þátt um Fjarðabyggðarhafnir. Þátturinn var hluti af þáttaröðinni Hafnir Íslands sem sýndur er á Hringbraut í haust.
Vegna línuvinnu hjá Landsneti er framleitt rafmagn fyrir Norðfjörð með díselvélum til kl.18:00 í dag. Raforkunotendur á Norðfirði eru því beðnir um að slökkva á ónauðsynlegri kyndingu, þurrkurum og þvottavélum, til að komast megi hjá skömmtun á rafmagni. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. Nánari upplýsingar gefur svæðisvakt RARIK á Austurlandi í síma 528 9790.
Á föstudaginn var Bleiki dagurinn haldinn um allt land en hann er liður í því að vekja athygli á "Bleiku slaufunni" átaksverkefni Krabbameinsfélags Íslands um baráttu gegn krabbmeinum hjá konum.
Umhverfisverðlaun Fjarðabyggðar voru veitt í annað sinn á Stríðsárasafninu á Reyðarfirði í dag. Viðurkenningar voru veittar í þremur flokkum; fyrir snyrtilegustu lóð við íbúðarhús, snyrtilegasta umhverfi íbúðarhúss í dreifðri byggð og snyrtilegustu fyrirtækjalóð. Óskað var eftir tilnefningum frá íbúum í Fjarðabyggð og bárust alls 11 tilnefningar á öllum flokkum.
Tæknidagur fjölskyldunnar var haldinn í Verkmenntaskóla Austurlands á laugardaginn. Fjöldi manns lagði leið sína í Neskaupstað til að kynna sér það helsta sem Austurland hefur upp á að bjóða á sviði tækni, vísinda, nýsköpunar, verkmennta og þróunar.
Klukkan 12:00 í dag verður Tæknidagur fjölskyldunnar haldinn í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Dagskráinn að þessu sinni er vegleg og margt um að vera.
Í dag, 3. október, fagnar leikskólinn Lyngholt á Reyðarfirði 40 ára afmæli. Af því tilefni verður gestum og gangandi boðið í heimsókn á Lyngholt í dag milli kl. 14 og 16.
Fjölmargir sóttu fyrirlesturinn Fjölþætt heilsuefling í sveitarfélögum - Leið að farsælum efri árum sem haldinn var í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði fimmtudaginn 28. september. Fyrirlesari var Dr. Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur.
Talsverð úrkoma og vatnavextir hafa verið á Austurlandi undanfarinn sólahring. Gert er ráð fyrir áframhaldandi úrkomu á morgun og vegna þessa hefur Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Austurland lýst yfir óvissustigi almannavarna.
Í sumar hefur mikið verið um að vera á vegum verkefnisins Art Attack í Neskaupstað. Fjölmargir listamenn hafa komið til Neskaupstaðar á vegum verkefnisins frá ýmsum löndum, allt frá Hawaii til Finnlands, og hafa svo sannarlega sett svip sinn á bæinn og bæjarlífið.