mobile navigation trigger mobile search trigger
26.04.2017

Auglýsing um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í breyttri landnotkun innan reits I1 á Stöðvarfirði.

Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugáttum bókasafnanna á Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði frá og með 27. apríl 2017 til og með 8. júní 2017. Athugasemdarfrestur er til sama tíma.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð

Breytingartillaga - Aðalskipulag Stöðvarfirði (PDF)

Frétta og viðburðayfirlit