mobile navigation trigger mobile search trigger
07.04.2017

Opnað fyrir umsóknir um sumarstörf og vinnuskóla 2017

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um sumarstörf, störf flokkstjóra og vinnuskóla 2017. 

Opnað fyrir umsóknir um sumarstörf og vinnuskóla 2017

Þau störf sem auglýst eru eru eftirfarandi:

Sumarstarfsmenn Þjónustumiðstöðva Fjarðabyggðar, 16 ára og eldri sem vinna við ýmis umhverfisverkefni hjá sveitarfélaginu. Verkefnin flokkast í tvennt: Grófari vinna er t.d. vélavinna eins og sláttur og orfun, undirbúningur fyrir malbikun, hellulögn ofl. Fín vinna er t.d. undirbúningur og viðhald blóma- og runnabeða, plöntun blóma og trjáa, tína rusl o.m.fl.

Flokkstjórar Vinnuskóla Fjarðabyggðar, 20 ára og eldri. Vinnuskólinn er fyrir unglinga í 8. og 9. bekk grunnskóla. Störf þeirra eru létt garðyrkjustörf s.s. hirðing blómabeða, almenn fegrun bæjarins, plöntun blóma og trjáa, sláttur og rakstur á minni svæðum íbúabyggðar o.m.fl.

Störf í vinnuskóla Fjarðabyggðar, fyrir unglinga í 8. og 9. bekk grunnskóla Fjarðabyggðar. Störf Vinnuskólans eru létt garðyrkjustörf s.s. hirðing blómabeða, tína rusl, plöntun blóma og trjáa, sláttur og rakstur á minni svæðum íbúabyggðar o.m.fl. Fræðsla á vegum skólans er fyrir 8. bekk og er viku kynning hjá VA, 9. bekkur viku kynning hjá Sjávarútvegsskólanum og fyrir báða bekkina einn dagur á vegum Landgræðslunnar - "að lesa landið".

Vinnutími: 14 ára 4 klst. á dag í 4 vikur, 15 ára 4 klst. á dag í 6 vikur.

Vinnuvikur sem hægt er að velja um eru: Vika 23, 6. júní til og með viku 33, 18. ágúst.

Við ráðningu í störfin er notast við nýjan ráðningavef Fjarðabyggðar.

Allt um Vinnuskóla Fjarðabyggðar 2017 er að finna hér.

Umsókn um Vinnuskóla.

Umsókn og upplýsingar um sumarstörf 16 og 17 ára.

Umsókn og upplýsingar um um sumarstörf 18 ára og eldri.

Umsókn og upplýsingar um störf verkstjóra/flokkstjóra.

Frétta og viðburðayfirlit