mobile navigation trigger mobile search trigger

Skíðatímabilinu í Oddsskarði lokið

06.05.2024 Skíðatímabilinu í Oddsskarði lokið
Nú þegar vor er komið í loftið þá er komið að lokum skíðatímabilsins í Oddsskarði. 
Óhætt er að segja að þetta hefur verið einn sá besti vetur um langa hríð. Þrátt fyrir að lokað hafi verið alla páskanna sökum veðurs. 
Lesa meira

Úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

06.05.2024 Úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Í síðast liðinni viku úthlutaði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tæplega 540 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. 29 verkefni hljóta styrk úr sjóðnum og dreifast um landið allt. Einn af hæstu styrkjunum hlaut Jökuldalur slf., 90 milljónir króna til áframhaldandi uppbyggingar í landi Grundar við Stuðlagil. Alls hlutu sex verkefni á Austurlandi styrk.

Lesa meira

Úthlutun Fiskeldissjóðs

02.05.2024 Úthlutun Fiskeldissjóðs

Á dögunum úthlutaði stjórn fiskeldisjóðs, 437,2 milljónum kr til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum. Af því var úthlutað til Fjarðabyggðar 151.840.000 kr. til fjögurra verkefna. Alls bárust 29 umsóknir frá átta sveitarfélögum, samtals að fjárhæð rúmlega 1,5 milljarður króna, sem er meira en þrefalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar. 

Umsóknarfrestur var til 6. mars og lauk úthlutun 8. apríl. 



Lesa meira

Útboð á tjaldsvæðum í Fjarðabyggð

30.04.2024 Útboð á tjaldsvæðum í Fjarðabyggð

Á dögunum voru opnuð tilboð í rekstur tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Alls bárust tilboð frá sex aðilum í mismunandi tjaldsvæði í Fjarðabyggð. Engin tilboð bárust í tjaldsvæðið á Eskifirði og Norðfirði.

Lesa meira

Opinn viðtalstími með bæjarstjóra í Eskifjarðarskóla

19.04.2024 Opinn viðtalstími með bæjarstjóra í Eskifjarðarskóla

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri býður uppá opinn viðtalstíma þriðjudaginn 23. apríl frá klukkan 18:00 - 19:30 í Eskifjarðarskóla. 

Íbúum er velkomið að koma við, fá sér kaffi og spjalla við bæjarstjóra um þau málefni sem brenna á þeim. 

Lesa meira

Orkumálin sett á oddinn

22.04.2024 Orkumálin sett á oddinn 22.04.2024

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, mun á næstu vikum halda opna fundi víðs vegar um land þar sem fjallað verður um orkumál og verkefnin framundan. Annar fundurinn verður haldinn á Egilsstöðum mánudaginn 22. apríl.

Lesa meira

Rafmagnleysi í Breiðdalsvík 30.04.2024 - UPPFÆRT

29.04.2024

Breytt tímasetning er á rafmagnsleysinu sem verður í stórum hluta Breiðdalsvíkur 30.04.2024 vegna viðhalds á dreifikerfi Rarik. Ný tímasetning er frá kl 23:00 til kl 03:00. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Austurlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Lesa meira