Fara í efni

Fréttir

default
25.08.2026

Sólarorka og viðarperlur nýttar í rekstri Fjarðabyggðar á Reyðarfirði

Vinna er hafin við tvö nýstárleg orkuverkefni á Reyðarfirði. Annars vegar verður sólarorka framleidd við Fjarðabyggðarhöllina og hins vegar verður komið upp kyndistöð sem samþættir nýtingu viðarperla og varmadælu til húshitunar í byggingum Fjarðabyggðar á svæðinu.
19.08.2026

Mikill áhugi á framtíð Stríðsárasafnsins

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Sara Hjördís Blöndal, sýningarhönnuður nýrrar sýningar Stríðsárasafnsins, héldu opinn íbúafund á Reyðarfirði mánudaginn 18. ágúst. Þar var fjallað um framtíð safnsins og verkefni Menningarstofu í tengslum við nýja sýningu kynnt.
18.08.2026

Fjölmenni tók þátt í Útsæðinu

Bæjarhátíðin Útsæðið fór fram á Eskifirði um helgina og tókst frábærlega. Fjölmenni lagði leið sína á hátíðina og tók þátt í fjölbreyttri dagskrá sem stóð yfir í fjóra daga. Veðrið lék jafnframt við gesti og var mun betra en spár höfðu gert ráð fyrir.
17.08.2026

Dægurlagadraumar snúa aftur á Austurland

Söng- og dansgleði í Neskaupstað og Eskifirði
13.08.2026

Þakkaði Guillaume Bazard fyrir góð kynni og samstarf

Á þjóðhátíðardegi Frakka, 14. júlí, bauð Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra Fjarðabyggðar, til árlegrar móttöku franska sendiráðsins.
11.08.2026

Menning sem athvarf og málefni hinsegin fólks til umræðu

Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, tók þátt í opnum fundi Hinsegin Austurlands í Valaskjálf á Egilsstöðum mánudaginn 10. ágúst. Á fundinum voru flutt fjölbreytt erindi um stöðu og réttindi hinsegin fólks, menningu, samfélag og þátttöku.
10.08.2026

Menning sem athvarf: Menningarstofa Fjarðabyggðar tekur þátt í opnum fundi Hinsegin Austurlands

Í kvöld, mánudaginn 10. ágúst kl. 20:00, stendur Hinsegin Austurland fyrir opnum fundi í Þingmúla í Valaskjálf á Egilsstöðum þar sem gestir frá Íslandi og erlendis fjalla um hinsegin málefni, réttindi, menningu og inngildingu.
05.08.2026

Vel heppnuð verslunarmannahelgi í Fjarðabyggð

Verslunarmannahelgin fór vel fram í Fjarðabyggð og var fjölbreytt dagskrá í boði fyrir fólk á öllum aldri. Að venju var bæjarhátíðin Neistaflug haldin í Neskaupstað og laðaði hún að sér fjölda gesta, bæði heimafólk, brottflutta Norðfirðinga og aðra gesti.
23.07.2026

Vináttubönd Fáskrúðsfjarðar og Gravelines styrkt á Frönskum dögum

Fulltrúar frá Gravelines heimsóttu Fáskrúðsfjörð dagana 16.–19. júlí í tilefni af Frönskum dögum. Heimsóknin var sérstaklega hátíðleg í ár þar sem hátíðin var haldin í 30. sinn og jafnframt var fagnað 35 ára vinabæjarsambandi Fáskrúðsfjarðar og Gravelines.
01.07.2026

Tónlistarnám á efri árum skilar sér í betri líðan

Sífellt fleiri rannsóknir benda til þess að tónlistarnám geti haft afar jákvæð áhrif á heilsu og lífsgæði eldra fólks.
29.06.2026

Hernámsdagsins minnst laugardaginn 4. júlí

Hernámsdagsins verður minnst á laugardaginn með spennandi dagskrá á Stríðsárasafninu.
22.06.2026

Fjarðabyggð styður við bæjarhátíðir sumarsins

Fjarðabyggð hefur undirritað samkomulag um styrk og samstarf við forsvarsfólk bæjarhátíða í sveitarfélaginu sumarið 2026.
18.06.2026

Fjölmenn og vel heppnuð 17. júní hátíðarhöld í Neskaupstað

17. júní hátíðarhöld Fjarðabyggðar fóru fram í Neskaupstað í ár og sá Þróttur Neskaupstaður um skipulagningu hátíðarhaldanna í samstarfi við Fjarðabyggð.
10.06.2026

Innsævi í fullum gangi: Kvæðakórinn í fjörunni, ball á Stöðvarfirði og svo margt fleira

Listahátíðin Innsævi leggur nú undir sig Fjarðabyggð og er hátíðarandinn í algleymingi. Fjöldi fjölbreyttra viðburða hefur þegar litið dagsins ljós, en dagskráin er fjarri því búin og fram undan eru einstakar menningarupplifanir þar sem austfirskar sagnir og samtímalist mætast.
09.06.2026

Rætt um framtíð lista og menningar í landsbyggðunum

Fulltrúar menningarlífs, stjórnvalda, rannsókna og skapandi greina koma saman á Eskifirði fimmtudaginn 11. júní þegar ráðstefnan Skapandi Austurland fer fram í Gamla barnaskólanum. Þar verður sjónum beint að stöðu, tækifærum og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum.
09.06.2026

Tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum

Austurbrú, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og Menningarstofa Fjarðabyggðar standa fyrir „Skapandi Austurlandi – ráðstefnu um stöðu, tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum.“
05.06.2026

Magnús Pálsson fyrsti Listamaður Fjarðabyggðar

Magnús Pálsson (1929), einn áhrifamesti brautryðjandi íslenskrar samtímalistar, hefur verið útnefndur fyrsti Listamaður Fjarðabyggðar.
03.06.2026

Bókasöfn Fjarðabyggðar hljóta tveggja milljóna króna styrk úr Bókasafnasjóði

Bókasöfn Fjarðabyggðar hlutu glæsilegan tveggja milljóna króna styrk úr Bókasafnasjóði fyrir verkefnið „Bókasöfn á menningarhátíðum Fjarðabyggðar“.
27.05.2026

Innsævi listahátíð haldin í Fjarðabyggð í júní

Listahátíðin Innsævi verður haldin dagana 1.–20. júní með fjölbreyttri dagskrá víðs vegar um Fjarðabyggð. Hátíðin býður íbúum og gestum að upplifa myndlist, tónlist, samveru og náttúru í skapandi samtali við umhverfið, sögurnar og fólkið á svæðinu.
21.05.2026

glott.fest í Fjarðabyggð – kvöldtónleikar ungs og upprennandi tónlistarfólks

glott.fest fer fram í Fjarðabyggð fimmtudaginn 5. júní sem hluti af Innsævi, tvíæringi og lista- og menningarhátíð Fjarðabyggðar.
22.04.2026

Fyrsti öndvegisstyrkur safna Fjarðabyggðar

Aðalúthlutun Safnasjóðs fór fram í síðustu viku þar sem Menningarstofa hlaut tvo stóra styrki.
22.04.2026

Söngvavor tónleikar haldnir í annað sinn á Austurlandi

Krúttlegustu tónleikar Austurlands fóru fram í annað sinn mánudag og þriðjudag
17.04.2026

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Sinfóníuhljómsveit Austurlands gera þriggja ára samstarfssamning

Sinfóníuhljómsveit Austurlands hélt glæsilega tónleika í Eskifjarðarkirkju á dögunum þar sem saxófónkonsertinn Dichotomies eftir Héraðsbúann Wes Stephens var frumfluttur.
17.04.2026

Sumarsmiðjur Menningarstofu 2026

Eins og síðustu sumur mun Menningarstofa Fjarðabyggðar halda úti listasmiðjum í sumar fyrir börn sem lokið hafa 3-7. bekk í grunnskóla (fædd 2013-2017).
16.04.2026

Innsævi fer fram í Fjarðabyggð 1.–20. júní

Menningarstofa Fjarðabyggðar vinnur nú að undirbúningi listahátíðarinnar Innsævis sem fram fer dagana 1.–20. júní næstkomandi. Hátíðin verður haldin víða um Fjarðabyggð, frá Breiðdalsvík til Mjóafjarðar, og verður dagskráin kynnt í heild sinni í maí.
10.04.2026

Frábær tónlistarviðburður fyrir alla fjölskylduna

Stórtónleikar Sinfóníuhljómsveitar Austurlands haldnir 12. apríl.
07.04.2026

Vel heppnað Páskafjör lokið

Páskafjör í Fjarðabyggð fór fram um páskana með fjölbreyttri dagskrá víða um sveitarfélagið.
07.04.2026

Úthlutun úr Menningarsjóði 2026

Stjórn Menningarstofu Fjarðabyggðar tók til umfjöllunar á fundi sínum nýverið þær umsóknir sem bárust Menningarsjóði í ár.
27.03.2026

Ný tónleikaröð hefst á Breiðdalsvík - Hipsumhaps ríða á vaðið

Föstudaginn 3. apríl hefst ný tónleikaröð, Víkurvaki, í Frystihúsinu á Breiðdalsvík þegar hljómsveitin Hipsumhaps stígur á svið.
11.03.2026

Listamenn í rannsóknardvöl í Þórsmörk 2026

Meira en 60 umsóknir bárust um Þórsmörk listamannadvölina 2026 frá einyrkjum, listamannadúóum og listahópum. Alls sóttu yfir 70 listamenn um þátttöku í verkefninu. Af þeim voru valdir 10 sjálfstæðir listamenn, tvö listamannadúó og einn listahópur til rannsóknardvalar.