Fara í efni

Fréttir

27.10.2026

Tenór eða baritón? Nemendur kynntust heimi óperunnar

Hvað er aría og hvernig hljómar tenór? Um 220 nemendur í 1.–4. bekk úr grunnskólum Fjarðabyggðar fengu svör við þessum spurningum og fleiri til þegar þeir mættu í óperufræðslu í Eskifjarðarkirkju föstudaginn 23. október.
27.10.2026

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Þjóðaróperan vilja efla óperustarf á Austurlandi

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Þjóðaróperan hafa undirritað viljayfirlýsingu um áframhaldandi samstarf um óperusýningar, fræðslu og þróun tónlistarstarfs á Austurlandi. Markmiðið er að auka aðgengi íbúa að óperulist og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu.
23.10.2026

Framundan: Óperugleði, lifandi ljós og leyndardómar myrkursins

Óperan kemur í Eskifjarðarkirkju á sunnudag og Dagar myrkurs hefjast um helgina. Framundan eru dagar þar sem kirkjur verða að ljósalistaverkum, þjóðsögur lifna við og tónlist, myndlist og skáldskapur gefa tilefni til að fara út og njóta samverunnar. Dagskráin í Fjarðabyggð nær frá laugardeginum 24. október til mánaðamóta.
21.10.2026

Ljós, listir og lifandi sögur á Dögum myrkurs

Dagar myrkurs eru framundan, sameiginleg byggðahátíð Austurlands þar sem skammdeginu og samverunni er fagnað með fjölbreyttum viðburðum. Í Fjarðabyggð verður dagskrá dagana 24.–31. október með tónleikum, þjóðsögum, myndlist, ritlistarvinnustofu og ljóðalestri. Þrjár kirkjur verða jafnframt að lifandi ljósalistaverkum þar sem þjóðsagan um Völvuna á Hólmahálsi fær nýtt líf.
16.10.2026

Kvikmyndir, leikhús og bleikir viðburðir framundan í Fjarðabyggð

Pólsk kvikmyndahátíð, Blakkát í Egilsbúð og silkiprentsmiðjur á Stöðvarfirði setja svip á helgina í Fjarðabyggð. Bleikur október heldur líka áfram með hreyfingu og samveru og á miðvikudag verður boðið upp á tónlist og uppistand á Bleiku kvöldi í Skrúð.
15.10.2026

Þjóðaróperan í Eskifjarðakirkju með „Undir sömu stjörnu“

Opnunarviðburður Þjóðaróperunnar, „Undir sömu stjörnu“, verður í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 25. október kl. 15. Sýningin er unnin í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar, Sinfóníuhljómsveit Austurlands ásamt Óperukór Austurlands og er hluti af sýningarferð hinnar nýstofnuðu Þjóðaróperu um landið.
14.10.2026

Minnsta pólska kvikmyndahátíð í heimi snýr aftur á Eskifjörð

Hvað þýðir að vera pólskur í sífellt samtengdari heimi? Sú spurning er meðal viðfangsefna Pólsku kvikmyndahátíðarinnar í Fjarðabyggð, sem verður haldin í sjötta sinn í Valhöll á Eskifirði dagana 16.–18. október. Á þremur dögum verða sýndar tólf kvikmyndir sem veita innsýn í pólskt samfélag og kvikmyndagerð samtímans.
09.10.2026

Tónlist, tröll og leikhús á dagskrá í Fjarðabyggð

Það verður ýmislegt í boði í Fjarðabyggð um helgina og í næstu viku. Útgáfuhóf, tónleikar Nýdanskrar og lokaviðburðir BRAS eru meðal þess sem stendur til boða þessa helgina. Í næstu viku tekur svo við leiksýning í Egilsbúð og zumba á Breiðdalsvík í tilefni af Bleikum október.
06.10.2026

Íslendingadagar í Gravelines og 35 ára vinabæjasamstarf

Fulltrúar Fjarðabyggðar og Franskra daga tóku þátt í Íslendingadögum í Gravelines í Frakklandi dagana 25.–27. september. Hátíðin markaði jafnframt 35 ára vinabæjasamstarf Fáskrúðsfjarðar og Gravelines.
02.10.2026

BRAS, Bleikur október og óperutónar í Fjarðabyggð

Skapandi smiðjur, samstaða og óperutónlist setja svip sinn á október í Fjarðabyggð. BRAS heldur áfram fram til 11. október, Bleikur október vekur athygli á krabbameinum hjá konum og nýstofnuð Ópera kemur í Eskifjarðarkirkju með dagskrána Undir sömu stjörnu.
30.09.2026

Jarðfræðingar heiðra George Walker á Breiðdalsvík

Jarðfræðingar frá Íslandi og fleiri löndum koma saman á Breiðdalsvík dagana 30. september til 2. október til að minnast George P. L. Walkers, í tilefni af aldarafmæli hans. Ráðstefnan fjallar um framlag hans til jarðvísinda og framtíð rannsókna á jarðfræði Austurlands.
22.09.2026

Fjörubingó í blíðunni á Mjóeyri

Yfir 200 manns komu saman á Mjóeyri á Eskifirði í gær, 21. september, þegar Skoppa og Skrítla buðu fjölskyldum í fjörubingó á BRAS, barna- og menningarhátíð Austurlands.
18.09.2026

Dagur íslenskrar náttúru markaði upphaf fyrir BRAS

Náttúrustofa Austurlands og Menningarstofa Fjarðabyggðar héldu upp á dag íslenskrar náttúru í Þórsmörk listamannasetri í Neskaupstað 16. september síðastliðin.
14.09.2026

BRAS vekur undur og furðu á Austurlandi!

BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, hefur göngu sína í 9. sinn nú 21. september til 11. október. Þema hátíðarinnar í ár er Undur og furða og viðburðirnir opna undraheim sirkuslista, sæskrímsla, trölla, myndlistar, tónlistar, bókmennta og leikhúss svo eitthvað sé nefnt.
14.09.2026

Listir og sköpun um allt sveitarfélagið

Fjölbreytt lista- og menningarstarf fór fram á vegum Menningarstofu Fjarðabyggðar sumarið 2026. Sýningar, tónleikar, listasmiðjur, listamannadvalir og skapandi sumarstörf settu svip sinn á sumarið í byggðarkjörnum sveitarfélagsins.
09.09.2026

Öflugt sumar hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar

Fjölbreytt starf fór fram hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar í menningar-, lista- og safnastarfi sumarið 2026. Gestir skiptu þúsundum, yfir 30 viðburðir voru haldnir á Innsævi og börn, ungmenni, listafólk og íbúar tóku þátt í skapandi verkefnum víða um sveitarfélagið.
03.09.2026

Framkvæmdastjóri Safnaráðs kynnti sér safnastarf í Fjarðabyggð

Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs, heimsótti Fjarðabyggð þriðjudaginn 1. september. Í heimsókninni kynnti hún sér starfsemi safna sveitarfélagsins og þær umbætur sem unnið er að á aðstöðu þeirra.
01.09.2026

VÖLVUMYRKVI opnaði í Þórsmörk í Neskaupstað

Sýningin VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners eftir listakonuna Helgu Dórótheu Fannon opnaði í Þórsmörk í Neskaupstað síðastliðinn laugardag, 29. ágúst. Opnunin bauð gestum upp á áhrifaríka og fjölbreytta upplifun þar sem hreyfimyndir, hljóð, skúlptúrar og innsetningar fléttuðust saman í sýningarrýminu.
default
25.08.2026

Sólarorka og viðarperlur nýttar í rekstri Fjarðabyggðar á Reyðarfirði

Vinna er hafin við tvö nýstárleg orkuverkefni á Reyðarfirði. Annars vegar verður sólarorka framleidd við Fjarðabyggðarhöllina og hins vegar verður komið upp kyndistöð sem samþættir nýtingu viðarperla og varmadælu til húshitunar í byggingum Fjarðabyggðar á svæðinu.
19.08.2026

Mikill áhugi á framtíð Stríðsárasafnsins

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Sara Hjördís Blöndal, sýningarhönnuður nýrrar sýningar Stríðsárasafnsins, héldu opinn íbúafund á Reyðarfirði mánudaginn 18. ágúst. Þar var fjallað um framtíð safnsins og verkefni Menningarstofu í tengslum við nýja sýningu kynnt.
18.08.2026

Fjölmenni tók þátt í Útsæðinu

Bæjarhátíðin Útsæðið fór fram á Eskifirði um helgina og tókst frábærlega. Fjölmenni lagði leið sína á hátíðina og tók þátt í fjölbreyttri dagskrá sem stóð yfir í fjóra daga. Veðrið lék jafnframt við gesti og var mun betra en spár höfðu gert ráð fyrir.
17.08.2026

Dægurlagadraumar snúa aftur á Austurland

Söng- og dansgleði í Neskaupstað og Eskifirði
13.08.2026

Þakkaði Guillaume Bazard fyrir góð kynni og samstarf

Á þjóðhátíðardegi Frakka, 14. júlí, bauð Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra Fjarðabyggðar, til árlegrar móttöku franska sendiráðsins.
11.08.2026

Menning sem athvarf og málefni hinsegin fólks til umræðu

Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, tók þátt í opnum fundi Hinsegin Austurlands í Valaskjálf á Egilsstöðum mánudaginn 10. ágúst. Á fundinum voru flutt fjölbreytt erindi um stöðu og réttindi hinsegin fólks, menningu, samfélag og þátttöku.
10.08.2026

Menning sem athvarf: Menningarstofa Fjarðabyggðar tekur þátt í opnum fundi Hinsegin Austurlands

Í kvöld, mánudaginn 10. ágúst kl. 20:00, stendur Hinsegin Austurland fyrir opnum fundi í Þingmúla í Valaskjálf á Egilsstöðum þar sem gestir frá Íslandi og erlendis fjalla um hinsegin málefni, réttindi, menningu og inngildingu.
05.08.2026

Vel heppnuð verslunarmannahelgi í Fjarðabyggð

Verslunarmannahelgin fór vel fram í Fjarðabyggð og var fjölbreytt dagskrá í boði fyrir fólk á öllum aldri. Að venju var bæjarhátíðin Neistaflug haldin í Neskaupstað og laðaði hún að sér fjölda gesta, bæði heimafólk, brottflutta Norðfirðinga og aðra gesti.
23.07.2026

Vináttubönd Fáskrúðsfjarðar og Gravelines styrkt á Frönskum dögum

Fulltrúar frá Gravelines heimsóttu Fáskrúðsfjörð dagana 16.–19. júlí í tilefni af Frönskum dögum. Heimsóknin var sérstaklega hátíðleg í ár þar sem hátíðin var haldin í 30. sinn og jafnframt var fagnað 35 ára vinabæjarsambandi Fáskrúðsfjarðar og Gravelines.
01.07.2026

Tónlistarnám á efri árum skilar sér í betri líðan

Sífellt fleiri rannsóknir benda til þess að tónlistarnám geti haft afar jákvæð áhrif á heilsu og lífsgæði eldra fólks.
29.06.2026

Hernámsdagsins minnst laugardaginn 4. júlí

Hernámsdagsins verður minnst á laugardaginn með spennandi dagskrá á Stríðsárasafninu.
22.06.2026

Fjarðabyggð styður við bæjarhátíðir sumarsins

Fjarðabyggð hefur undirritað samkomulag um styrk og samstarf við forsvarsfólk bæjarhátíða í sveitarfélaginu sumarið 2026.