Yfir 200 manns komu saman á Mjóeyri á Eskifirði í gær, 21. september, þegar Skoppa og Skrítla buðu fjölskyldum í fjörubingó á BRAS, barna- og menningarhátíð Austurlands.
Um tuttugu einstaklingar hafa hafið meðferð hjá Píetaskjólinu á Reyðarfirði frá opnun þess í febrúar 2025. Auk þess hafa tæplega tíu aðstandendur og syrgjendur nýtt sér þjónustuna.
Leikskólinn Eyrarvellir í Neskaupstað fagnaði tíu ára afmæli í gær. Af því tilefni var boðið til opins húss þar sem gestir gátu skoðað leikskólann og rifjað upp liðna tíð.
Náttúrustofa Austurlands og Menningarstofa Fjarðabyggðar héldu upp á dag íslenskrar náttúru í Þórsmörk listamannasetri í Neskaupstað 16. september síðastliðin.
Ljósleiðaravæðing Mílu í sex þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar er langt komin. Framkvæmdirnar ná til Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Neskaupstaðar, Eskifjarðar, Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar og fela í sér mikilvæga styrkingu fjarskiptainnviða í sveitarfélaginu
Endurtekið grjóthrun í Kambaskriðum og hættan sem því fylgir fyrir vegfarendur veldur bæjarráði Fjarðabyggðar þungum áhyggjum. Vegurinn er mikilvæg samgönguleið milli byggðarkjarna og um hann fer meðal annars daglegur skólaakstur.
Jóhanna Karlsdóttir, leiðbeinandi í leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði, fagnaði á dögunum 48 ára starfsafmæli. Hún hóf störf aðeins 18 ára gömul og hefur starfað í fullu starfi við leikskólann allar götur síðan.
Bæjarstjórar þurfa gjarnan að bera marga hatta en þó sjaldan sjóhatt. Það breyttist hjá Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra Fjarðabyggðar, þegar hún fór í sinn fyrsta síldartúr með Beiti NK á dögunum.
Íþróttavika Evrópu verður haldin í Fjarðabyggð dagana 23.–30. september. Boðið verður upp á fjölbreytta hreyfingu og viðburði víðs vegar um sveitarfélagið og ættu flest að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, hefur göngu sína í 9. sinn nú 21. september til 11. október. Þema hátíðarinnar í ár er Undur og furða og viðburðirnir opna undraheim sirkuslista, sæskrímsla, trölla, myndlistar, tónlistar, bókmennta og leikhúss svo eitthvað sé nefnt.
Fjölbreytt lista- og menningarstarf fór fram á vegum Menningarstofu Fjarðabyggðar sumarið 2026. Sýningar, tónleikar, listasmiðjur, listamannadvalir og skapandi sumarstörf settu svip sinn á sumarið í byggðarkjörnum sveitarfélagsins.
Fjölbreytt starf fór fram hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar í menningar-, lista- og safnastarfi sumarið 2026. Gestir skiptu þúsundum, yfir 30 viðburðir voru haldnir á Innsævi og börn, ungmenni, listafólk og íbúar tóku þátt í skapandi verkefnum víða um sveitarfélagið.
Erla Margrét Gunnarsdóttir hefur tekið til starfa sem skipulags- og umhverfisfulltrúi Fjarðabyggðar. Hún kemur til sveitarfélagsins frá Ísafjarðarbæ, þar sem hún gegndi sama starfi.
Verkmenntaskóli Austurlands fagnar 40 ára afmæli um helgina. Hátíðin hefst með tónleikum í Egilsbúð föstudagskvöldið 4. september og heldur áfram með afmælisdagskrá og opnu húsi laugardaginn 5. september.
Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs, heimsótti Fjarðabyggð þriðjudaginn 1. september. Í heimsókninni kynnti hún sér starfsemi safna sveitarfélagsins og þær umbætur sem unnið er að á aðstöðu þeirra.
Verkmenntaskóli Austurlands fagnar 40 ára afmæli í ár. Alls eru 642 nemendur skráðir í nám við skólann, þar af 131 í dagskóla. Á fjórum áratugum hafa 1.832 nemendur lokið námi við VA.
Sýningin VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners eftir listakonuna Helgu Dórótheu Fannon opnaði í Þórsmörk í Neskaupstað síðastliðinn laugardag, 29. ágúst. Opnunin bauð gestum upp á áhrifaríka og fjölbreytta upplifun þar sem hreyfimyndir, hljóð, skúlptúrar og innsetningar fléttuðust saman í sýningarrýminu.
Vinna við uppbyggingu göngustíga við Bleiksá á Eskifirði er hafin. Nýr stígur innan við ána er þegar farinn að taka á sig mynd og undirbúningur framkvæmda austan Bleiksár stendur yfir.
Ásókn í sundlaugar Fjarðabyggðar hefur aukist um 17 prósent í sumar miðað við sama tímabil í fyrra. Alls voru 23.731 heimsókn skráð í sundlaugarnar frá 1. júní til 25. ágúst, samanborið við 20.258 heimsóknir á sama tímabili árið 2025.
Vinna er hafin við tvö nýstárleg orkuverkefni á Reyðarfirði. Annars vegar verður sólarorka framleidd við Fjarðabyggðarhöllina og hins vegar verður komið upp kyndistöð sem samþættir nýtingu viðarperla og varmadælu til húshitunar í byggingum Fjarðabyggðar á svæðinu.
Ýmis viðhalds- og endurbótaverkefni eru nú í gangi í og við fasteignir og mannvirki Fjarðabyggðar. Framkvæmdir standa meðal annars yfir við Breiðdalsskóla, leikskólann Dalborg og sundlaugina á Eskifirði, grunnskóla Reyðarfjarðar og Stríðsárasafnið á Reyðarfirði.
Um 660 nemendur hefja nám í grunnskólum Fjarðabyggðar á næstu dögum þegar skólastarf vetrarins 2026–2027 fer af stað. Nemendur og foreldrar mæta til viðtala eða kynningarfunda mánudaginn 24. ágúst og kennsla samkvæmt stundaskrá hefst þriðjudaginn 25. ágúst.
Menningarstofa Fjarðabyggðar og Sara Hjördís Blöndal, sýningarhönnuður nýrrar sýningar Stríðsárasafnsins, héldu opinn íbúafund á Reyðarfirði mánudaginn 18. ágúst. Þar var fjallað um framtíð safnsins og verkefni Menningarstofu í tengslum við nýja sýningu kynnt.
Bæjarhátíðin Útsæðið fór fram á Eskifirði um helgina og tókst frábærlega. Fjölmenni lagði leið sína á hátíðina og tók þátt í fjölbreyttri dagskrá sem stóð yfir í fjóra daga. Veðrið lék jafnframt við gesti og var mun betra en spár höfðu gert ráð fyrir.