mobile navigation trigger mobile search trigger
27.03.2020

"Hugrökku hjarta er ekkert ómögulegt"

Nemendur á yngsta stigi í Grunnskóla Reyðarfjarðar hafa undanfarið unnið að verkefni í tengslum við einkunnarorð skólans „Hugrökku hjarta er ekki ómögulegt“. Eitt af verkefnum nemendanna var að vinna listaverk sem sýnir túlkun þeirra á þessum einkunarorðum, sem eiga einkar vel við nú.

"Hugrökku hjarta er ekkert ómögulegt"
"Hugrökku hjarta er ekki ómögulegt" Listaverk nemenda í 1. - 4. bekk í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Mynd: Grunnskóli Reyðarfjarðar

Markmið verkefnisins var að tengja saman það sem er að gerast í samfélaginu og hvernig við hjálpum hvert öðru við að vera hugrökk á jákvæð. Það er svo sannarlega eitthvað sem við ættum öll að geta tekið með okkur inn í næstu daga og vikur.'

Hluta af listaverkum nemendanna má sjá á myndinni hér til hliðar.