FUNDATÍMAR
Fundir bæjarstjórnar eru opnir almenningi. Fundir bæjarráðs og fastanefnda eru á hinn bóginn lokaðir. Bæjarstjórn, bæjarráð og fastanefndir koma reglubundið saman, en boða þess utan til funda eftir þörfum. Fundir fara, að sumarmánuðum undanskildum, að jafnaði fram tvisvar í mánuði á bæjarskrifstofunni á Reyðarfirði á eftirtöldum vikudögum:
- Fundir bæjarstjórnar eru hvern fyrsta og þriðja fimmtudag
- Fundir bæjarráðs eru haldnir vikulega á mánudögum
- Menningar- og nýsköpunarnefnd á mánudögum
- Barnaverndarnefnd eftir þörfum
- Umhverfis- og skipulagsnefnd á þriðjudögum
- Félagsmálanefnd á mánudögum
- Hafnarstjórn á þriðjudögum
- Mannvirkja- og veitunefnd á miðvikudögum
- Fræðslunefnd á miðvikudögum
- Íþrótta- og tómstundanefnd á fimmtudögum
Móttaka umsókna og erinda
Erindi til bæjarráðs eða fastanefnda Fjarðabyggðar skal stílað á bæjarráð eða viðkomandi nefnd og sent á:
Bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar
Hafnargötu 2
730 Fjarðabyggð
Erindum er einnig hægt að skila inn á þjónustugáttir bókasafna. Erindum er svarað eftir umfjöllun í viðkomandi nefnd og bæjarstjórn eftir því sem við á. Forstöðumaður stjórnsýslu veitir nánari upplýsingar um málsmeðferð og málshraða í síma 470 9000 eða á netfanginu fjardabyggd@fjardabyggd.is. Hann veitir einnig upplýsingar um hvert beina beri erindum og umsóknum.