Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir ráðgjafa í félagsþjónustu. Um er að ræða 80-100% starfshlutfall til afleysinga í eitt ár með möguleika á áframhaldandi vinnu.
Ráðgjafi í félagsþjónustu á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar
Ert þú dugmikill einstaklingur með reynslu af félagsráðgjöf eða sambærilegu starfi? Hefur þú brennandi áhuga á því að vinna með fólki ? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér!
Fjarðabyggð er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni allra íbúa. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og stuðning starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast stuðningsþörfum ólíkra einstaklinga jafnt fullorðinna og barna með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.
Starf ráðgjafa í félagsþjónustu heyrir undir stjórnanda félagsþjónustu og barnaverndar Fjarðabyggðar.
Helstu verkefni:
- Félagslegráðgjöf til einstaklinga sem leita til félagþjónustunnar svo sem vegna atvinnuleysis, veikinda, fötlunar, öldrunar, húsnæðis-, fjárhags-, fjölskyldu- og áfengis- eða vímuefnavanda.
- Málastjórn í stuðningsteymum vegna farsældar barna.
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf eru æskileg.
- Þekking og reynsla af starfi við barnavernd og/eða félagsþjónustu er kostur.
- Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti skilyrði.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hreint sakavottorð.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði heilbrigðis- og/eða félagsvísinda.
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf eru æskileg.
- Þekking og reynsla af starfi við barnavernd og/eða félagsþjónustu er kostur.
- Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti skilyrði.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Þekking á One CRM skjalakerfinu er kostur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.
Umsóknarfrestur: er til 15. Júní 2023
Frekari upplýsingar veitir Laufey Þórðardóttir Sviðstjóri fjölskyldusviðs. laufey.thordardottir@fjardabyggd.is sími: 7724399