Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla var slitið á miðvikudaginn var og lýkur þar með sjöunda starfsári skólans en hann varð til 2018 með sameiningu Grunnskóla Breiðdalshrepps og Stöðvarfjarðarskóla.
06.06.2025
Skólaslit í Breiðdals- og Stöðvarfjarðaskóla

Steinþór Snær Þrastarson skólastjóri flutti ávarp og síðan tóku árgangarnir hver af öðrum við vitnisburðarblöðum sínum hjá umsjónarkennurum. Áður en 10. bekkur fékk sinn vitnisburð las Sólrún Líf Þórarinsdóttir ljóð en hún var fulltrúi skólans í Stóru upplestrarkeppninni í vetur.
Að þessu sinni útskrifuðust þrír nemendur úr 10. bekk og óskum við þeim velfarnaðar í öllu því sem þeir taka sér fyrir hendur.
Starfsfólk skólans þakkar nemendunum fyrir samstarfið í vetur og eru full tilhlökkunar fyrir næsta vetri.