mobile navigation trigger mobile search trigger
26.04.2021

Sumarafleysingar og hlutastörf í búsetuþjónustu

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar, hlutastörf um helgar og afleysingar í búsetuþjónustu á Reyðarfirði. Um er að ræða þjónustu í vaktavinnu á heimilum fatlaðs fólks þar sem veitt er sólarhringsþjónusta. Í búsetunni starfa nú þegar sjö starfsmenn í 80-100% starfi sem vilja þig í lið með sér!

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Góð kunnátta í íslensku.
  • Æskilegt er að starfsmenn séu með bílpróf.

Við bjóðum upp á:

  • Frábært og öflugt samstarfsfólk.
  • Tækifæri til að taka þátt í umbótastarfi.
  • Tækifæri til að láta ljós sitt skína í krefjandi starfsumhverfi.
  • Laun skv. nýjum kjarasamningum sem fela í sér minni viðveru en betri kjör.

Umsóknarfrestur er til 10. maí 2021. Sótt er um á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður búsetuþjónustu Anna H. Árnadóttir – anna.h.arnadottir@fjardabyggd.is – 470-9000.