Bókasöfn í Fjarðabyggð verða með sérstaka sumaropnun í sumar. Opnunartími er sem hér segir:
Bókasafnið í Breiðdal
Opið á fimmtudögum frá kl. 14:00 til 18:00, frá 04. júní til 27. ágúst.
Bókasafnið á Stöðvarfirði
Opið á fimmtudögum frá kl. 14:00 til 18:00, frá 11. júní til 30. júlí.
Bókasafnið á Fáskrúðsfirði
Opið á mánudögum frá kl. 14:00 til 18:00, frá 08. júní til 10. ágúst.
Bókasafnið á Reyðarfirði
Opið á fimmtudögum frá kl. 14:00 til 18:00, frá 18. júní til 06. ágúst.
Bókasafnið á Eskifirði
Opið á miðvikudögum frá kl. 14:00 til 18:00, frá 25. júní til 05. ágúst.
Bókasafnið í Neskaupstað
Opið á mánudögum frá kl. 14:00 til 18:00, frá 15. júní til 5. ágúst.
Eftir auglýsta sumaropnun verða söfnin opin með hefðbundnum hætti.
Gestir safnanna eru beðnir um að virða þær reglur sem settar hafa verið varðandi samkomubannið og að þeir fylgi fyrirmælum.
- Allir skulu spritta sig við komu á safnið.
- Allir virði tveggja metra regluna.
- Leitumst við að dreifa álaginu.
- Gestir takmarki snertingar á bókum og innastokksmunum.
- Skilabækur eru sótthreinsaðar og fara ekki strax í útlán. Miðað er við að bækur verði í sóttkví í 2 til 3 daga áður en þær fari í útlán aftur.
Minnum á facebook síðu bókasafnanna, þar sem ýmsan fróðleik er að finna.
Ef breytingar verða á fyrirkomulaginu verður það auglýst á heimasíðu Fjarðabyggðar.
Þökkum tillitssemina.
Safnastofnun Fjarðabyggðar