mobile navigation trigger mobile search trigger
22.07.2019

Undiritun samnings vegna ofanflóðavarna í Neskaupstað - Urðarbotnar og Sniðgil

Undirritun verksamnings vegna framkvæmdar við ofanflóðavarnir í Neskaupstað – Urðarbotnar og Sniðgil - fór fram 10. júlí, við minningarreitinn við Tröllagilsgarða í Neskaupstað. 

Undiritun samnings vegna ofanflóðavarna í Neskaupstað - Urðarbotnar og Sniðgil
Á myndinni eru frá vinstri Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Ofanflóðasjóðs, Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Viðar Hauksson stjórnarformaður Héraðsverks ehf.

Um er að ræða þriðja áfanga í gerð snjóflóðavarna fyrir Neskaupstað.  Reistur verður leiðigarður, þvergarður og keilur. Garðarnir og keilurnar verða úr jarðefnum sem fengin eru innan framkvæmdasvæðisins, bæði laust efni og efni úr bergskeringum. Flóðmegin verður þvergarðurinn og keilurnar byggð upp með styrkingarkerfi til að mæta bratta og lögun, sem ákvarðast út frá útreiknaðri hönnun. Í verkinu felst einnig gerð vinnuvega, varanlegra slóða, gangstíga, áningarstaða og drenskurða, auk þes sem umfang lækjarfarvega verður stækkað. Áætluð verklok eru 1.desember 2021.  Verktaki er Héraðsverk og er upphæð verksamnings kr. 776.402.673.-