Verðfyrirspurn vegna ræstingar Leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði
Fjarðabyggð óskar eftir tilboðum í verkið „Ræsting Leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði“ í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
Ræstingin er boðin út á grunni reglna um verðfyrirspurnir í innkaupareglum Fjarðabyggðar.
Tilboðsfrestur er til kl. 13:00, þriðjudaginn 3. nóvember 2020.
Ef óskað er eftir að skoða húsnæði leikskólans þá hafið samband við leikskólastjóra, Lísu Lottu Björnsdóttur, í síma 474 - 1257
Verðfyrirspurnargögn eru einungis afhent rafrænt og tilboði skal einnig skila rafrænt samkvæmt verðfyrirspurnargögnum.
Verðfyrirspurn Leikskólinn Lyngholt 2020.pdf
Tilboðsblað Leikskólinn Lyngholt 2020.docx