mobile navigation trigger mobile search trigger

AÐ VINNA HJÁ FJARÐABYGGÐ

Sýn Fjarðabyggðar í starfsmanna- og mannauðsmálum byggir á því að ánægt starfsfólk og tæknilega vel í stakk búið, sé mikilvæg forsenda þess að starfsmenn Fjarðabyggðar geti veitt íbúum, fyrirtækjum og stofnunum í sveitarfélaginu framúrskarandi þjónustu. Starfsþróun gegnir veigamiklu hlutverki í mannauðsmálum hjá Fjarðabyggð og á starfsþróunarsamtal að fara fram í það minnsta einu sinni á ári. Markmið þess er að kortleggja fræðsluþörf og uppbyggingu á þekkingarauði hjá sveitarfélaginu.

Áhersla er lögð á að fylgst sé markvisst með nýmælum í starfsmanna- og mannauðsmálum, með bætt starfsumhverfi og aukna ánægju stafsfólks fyrir augum. Sveitarfélagið setti sér nýja mannauðsstefnu árið 2016 þar sem þessar áherslur eru undirstrikaðar.  Laus störf hjá Fjarðabyggð eru auglýst á vef sveitarfélagsins, staðarmiðlum og landsmiðlum eftir aðstæðum. Fjarðabyggð hlaut árið 2016 gullmerki jafnlaunaúttektar PwC fyrir framúrskarandi árangur í launajafnrétti kynjanna.

TENGD SKJÖL