mobile navigation trigger mobile search trigger
06.06.2023

Helgarvinna á heimili fyrir fatlaða

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til sumarstarfa í búsetuþjónustu fyrir fatlaða í Fjarðabyggð. Unnið er eftir hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimili síns.

Vinnan felst í því að aðstoða einstaklinga, eftir þörum, við athafnir daglegs lífs, hjálpa þeim að skipuleggja og halda uppi heimili, ásamt því að veita þeim aðstoð við að vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Um er að ræða tvær 20% stöður í helgarvinnu, önnur staðan er á Reyðafirði og hin á Neskaupstað.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs.
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
  • Starfa samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og vilji til að starfa með fólki.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
  • Hreint sakavottorð.

Starfslýsing starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk

Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí 2023

Æskilegt er að viðkomandi geti hafi störf sem fyrst.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Frekari upplýsingar veita Anna Guðlaug Hjartadóttir, forstöðumaður búsetuþjónustu fatlaða á netfangið anna.hjartardottir@fjardabyggd.is eða í síma 844-4845

Sótt er um starfið inná ráðningavervef Fjarðabyggðar