mobile navigation trigger mobile search trigger
07.11.2023

Kennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Helstu kennslugreinar:

  • Umsjónarkennsla í 4.bekk, möguleiki á fleiru.

Í skólanum eru um 101 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms. Leitað er að kennara sem er reiðubúin/n til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu skólans: www.fask.is

Fáskrúðsfjörður er einn af kjörnum Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
  • Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Starfslýsing grunnskólakennari

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 15. desember. 

Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veita Eydís Ósk Heimisdóttir skólastjóri, eydish@skolar.fjardabyggd.is og Ásta Kristín Guðmundsdóttir aðstoðarskólastjóri,astakg@skolar.fjardabyggd.is, einnig í síma 470-9020.

Sótt er um starfið inná ráðningarvef fjarðabyggðar