mobile navigation trigger mobile search trigger
30.04.2020

Leikskólakennarar leikskólann Eyrarvelli í Neskaupstað

Leikskólinn Eyrarvellir auglýsir eftir leikskólakennara. Um er að ræða 100 % stöðu

Leikskólinn er átta deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

 Starfslýsing leikskólakennara

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 17. maí  2020.

Nánari upplýsingar gefur Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1460/847-8232 eða á halla@skolar.fjardabyggd.is eða Ragnheiður Björk Harðardóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 477-1462 eða á ragnheidurbjork@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér