mobile navigation trigger mobile search trigger
09.03.2020

Leikskólakennarar við Lyngholt á Reyðarfirði

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennurum eða starfsfólki með sambærilega menntun í tímabundna stöðu með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og með ART.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, en um er að ræða 100% starf.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennari: Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta æskileg

Starfslýsing leikskólakennara

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Umsóknarfrestur er til  6. apríl 2020.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða gegnum netfangið: lisalotta@skolar.fjardabyggd.is og Gerður Ósk Oddadóttir, aðstoðarleikskólastjóri, gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér