mobile navigation trigger mobile search trigger
06.06.2023

Sumarafleysing - starfsmaður á heimili fyrir fatlaða í Fjarðabyggð

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til sumarstarfa í búsetuþjónustu fyrir fatlaða á Reyðafirði eða á Neskaupsstað. Unnið er eftir hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Vinnan felst í því að aðstoða einstaklinga, eftir þörum, við athafnir daglegs lífs, hjálpa þeim að skipuleggja og halda uppi heimili, ásamt því að veita þeim aðstoð við að vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Um er að ræða þjónustu í vaktavinnu í íbúðarkjarna fyrir fatlaða þar sem veitt er sólahringsþjónusta, svo einstaklingur þarf að geta unnið dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir. Í boði er 60-85% starf tímabundið í skemmtilegu starfsumhverfi ásamt fjölbreyttum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs.
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
  • Starfa samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og vilji til að starfa með fólki.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
  • Hreint sakavottorð.

Starfslýsing starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2023

Æskilegt er að viðkomandi geti hafi störf sem fyrst.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við

viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til 25. júní 2023

Frekari upplýsingar gefur Anna Guðlaug Hjartadóttir, forstöðumaður búsetuþjónustu fatlaða á netfangið

anna.hjartardottir@fjardabyggd.is eða í síma  844-4845

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar