mobile navigation trigger mobile search trigger
06.04.2016

Samkomuhús Stöðvarfjarðar í nýju hlutverki

Salthússmarkaður Stöðvarfjarðar endurnýjaði í dag samning sinn við Fjarðabyggð vegna samkomuhússins á Stöðvarfirði. Hér má sjá Hlíf Bryndísi Herbjörnsdóttur, formann markaðarins og Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóra, handsala samninginn að undirritun lokinni.

Samkomuhús Stöðvarfjarðar í nýju hlutverki
Hlíf Bryndís og Páll Björgvin handsala samninginn.

Samkvæmt samningnum tekur Salthússmarkaðurinn að sér áframhaldandi rekstur á handverksmarkaði og Gestastofu Fjarðabyggðar í samkomuhúsinu í sumar. Jafnframt verður opnunartími hússins lengur fram til 30. september með hliðsjón af auknum fjölda ferðamanna og lengingu ferðamannatímans á Austurlandi.

Á síðasta ári var ákveðið að ráðast í endurreisn samkomuhússins í kjölfar verkefnisins Stöðvarfjörður - nýtt upphaf, sem starfshópur um sóknarfæri Stöðvarfjarðar leiddi í samstarfi við íbúa staðarins. Umtalsverðar endurbætur voru gerðar á húsnæðinu og verður því starfi haldið áfram á þessu ári.

Verkefnið var styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands.

Frétta og viðburðayfirlit