mobile navigation trigger mobile search trigger
06.11.2015

Veginum út með norðanverðum Reyðarfirði lokað

Lögreglan á Austurlandi hefur að beiðni Ofanflóðavaktar Veðurstofu Íslands rýmt fjárbúið Engjabakka í norðanverðum Reyðarfirði auk þess sem veginum er lokað við Mjóeyri á Eskifirði.  Mikið hefur rignt og sprunga myndast í hlíðinni milli Hellisár og Beljanda.  

Veginum út með norðanverðum Reyðarfirði lokað

Þá hefur Norðfjarðarvegur sigið og verður hann vaktaður í nótt. Vegurinn hefur sigið um allt að 30 sentimetra, önnur akreinin meira en hin og hefur henni verið lokað.   
Á Engjabakka er fjárbú með 200 kindur og verður metið á morgun hvenær farið verður til gegninga og hvenær ábúanda verði óhætt að snúa til síns heima. Á hættusvæðinu er einnig sumarhús og bærinn Högnastaðir en þar er aðeins búið á sumrin.  Fylgst verður með aðstæðum næstu daga.

Frétta og viðburðayfirlit