Auglýsing á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, Heyklif, ferðaþjónusta ásamt deiliskipulagi Heyklifs og umhverfisskýrslu.
Lagt er til að landnotkun landbúnaðarsvæðisins við Heyklif á Kambanesi við sunnanverðan Stöðvarfjörð verði breytt þannig að gert verði ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu. Samhliða er auglýst tillaga að deiliskipulagi Heyklifs þar sem gert er ráð fyrir mannvirkjagerð tengdri ferðaþjónustu ásamt umhverfisskýrslu.
Tillögurnar ásamt umhverfisskýrslu verða til sýnis á skrifstofu Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði frá og með 2. apríl 2020 til og með 14. maí 2020.
Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Fjarðabyggðar www.fjardabyggd.is
Skila skal skriflegum athugasemdum til umhverfis- og skipulagssviðs á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í síma 470-9000 eða á netfangið skipulagsfulltrui@fjardabyggd.is