Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar að einstaklingi, 20 ára eða eldri, sem hefur áhuga á að sinna daggæslu barna í heimahúsi á Eskifirði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfað er eftir reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu barna í heimahúsum.
Allar upplýsingar gefur Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir í síma 470-9000 eða á netfanginu helga.gudlaugsdottir@fjardabyggd.is