mobile navigation trigger mobile search trigger
01.12.2020

Deiliskipulagið Eskifjörður-Útkaupstaður þátttaka íbúa - Framlengdur frestur til að skila tillögum til 15. desember

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar hefur samþykkt að leita eftir þátttöku íbúa við gerð deiliskipulagsins Eskifjörður-Útkaupstaður sem afmarkast af svæðinu neðan Túngötu, milli Grjótár og Útkaupstaðarbrautar og til sjávar milli Strandgötu 42 og 44.

Leitað er eftir tillögum að nýtingu svæðisins sem miðbæjarsvæði Eskifjarðar. Reiknað er með að núverandi húsnæði við Strandgötu 38 til 42 sé víkjandi (frystihús Eskju). Á svæðinu er meðal annars hægt að gera ráð fyrir útisvæði, torgi, verslun og þjónustu ásamt íbúðabyggð.

Hægt er að senda inn tillögur að nýtingu svæðisins á netfangið valur@fjardabyggd.is til 15. desember 2020 - Athugið að frestur til að skila tillögum hefur verið framlegdur til 15. desember.

Tillögur verða nýttar við gerð deiliskipulagsins Eskifjörður-Útkaupstaður þar sem íbúar og hagsmunaaðilar hafa áfram möguleika á aðkomu að skipulagsgerðinni.

Sviðsstjóri Umhverfis- og skipulagssviðs

Deiliskipulagið Eskifjörður-Útkaupstaður.pdf