Laus er til umsóknar staða forstöðumanns Sumarfrístundar á Eskifirði sumarið 2020. Starfið er 100% starf í sex vikur frá 25 maí til 5. júlí.
Í starfinu felst m.a.:
- Skipuleggja í samráði við íþrótta- og frístundastjóra og annað starfslið starfið í sumarfrístund með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni.
- Halda utan um skráningu barna í sumarfrístund.
- Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og sinna þroskandi viðfangsefnum jafnt úti sem inni.
- Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
Menntun og reynsla:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur uppeldismenntun.
- Reynsla af vinnu með börnum.
- Hreint sakavottorð
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
Hæfniskröfur:
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Metnaður og dugnaður.
- Áhugi á að taka þátt í og þróa nýtt verkefni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni.
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfslýsing Forstöðumaður sumarfrístundar
Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson íþrótta- og frístundastjóri í síma 893 9098 og í gegnum netfangið bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2020