Laus er til umsóknar staða frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Atóm í Neskaupstað. Um er að ræða tímavinnustarf sem fer fram aðallega seinnipart dags og á kvöldin.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynslu og áhuga á starfi með börnum og ungmennum
- Færni í samskiptum
Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Starfslýsing frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöð.pdf
Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. Sími: 893-9098. Netfang: bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar 2020.
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér