Laust er starf frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Hellinn á Fáskrúðsfirði
Laus er til umsóknar staða frístundaleiðbeinanda við Félagsmiðstöðina Hellinn á Fáskrúðsfirði. Um er að ræða tímavinnustarf sem fer fram aðallega seinnipart dags og á kvöldin.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
- hafi menntun sem nýtist í starfi
- reynslu og áhuga á starfi með börnum og ungmennum
- færni í samskiptum
Starfslýsing frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöð.pdf
Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og frístundastjóri. Sími: 893-9098. Netfang: bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2020.
Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér