mobile navigation trigger mobile search trigger
21.02.2023

Jóna Árný Þórðardóttir, nýr bæjarstjóri

Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, verður næsti bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Frá þessu var gengið í dag.

Jóna Árný kemur frá Norðfirði og hefur víðtæka stjórnunarreynslu og sérþekkingu á sviði rekstrar, fjármála og þróunar. Hún er löggiltur endurskoðandi og starfaði sem ráðgjafi hjá KPMG árin 2005-8, síðan sem fjármálastjóri Fjarðabyggðar í tvö ár, síðan önnur tvö ár í innri endurskoðun Alcoa Fjarðaál. Hún starfaði síðan sjálfstætt þar til hún varð framkvæmdastjóri Austurbrúar vorið 2014.

Jóna Árný Þórðardóttir, nýr bæjarstjóri

Gengið verður endanlega frá ráðningarsamningi Jónu Árnýjar á næstu dögum og hann síðan lagður fyrir bæjarstjórn til formlegrar samþykktar. Ekki hefurverið gengið endanlega frá því hvenær Jóna Árný komi til starfa en það skýrist á næstu dögum.

Jóna er boðin velkomin til starfa.