mobile navigation trigger mobile search trigger
03.10.2019

Kuldaboli 2019

Dagana 28. - 29. september fór fram ungmennahátíðin Kuldaboli fram í tíunda sinn, en hátíðin er haldin á vegum Félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar. Eins og vanalega var unglingum úr 8. – 10. bekk af öllu Austurlandi boðið að taka þátt. Frábær þátttaka var í ár en samtals voru um 290 ungmenni sem mættu og skemmtu sér saman.

Kuldaboli 2019

Aðalmarkmiðið Kuldabola er að ungmenni kynnist innbyrðis, prófi nýjar tómstundir og skemmti sér á heilbrigðan máta. Á meðal þess sem var boðið upp á í smiðjunum þetta árið voru fræðslusmiðja, skotboltasmiðja, sirkussmiðja, videosmiðja, danssmiðja og gömlu leikirnir. Smiðjurnar gengu vel fyrir sig og frábært að sjá hvað ungmennin voru dugleg að prófa nýja hluti og takast á við spennandi áskoranir. Eftir að smiðjunum lauk var öllum boðið í pítsuveislu.

Kvöldskemmtunin í ár var ekki að verri endanum en Máni Valsson hélt uppi brjáluðu stuði með gítarinn sinn og tók hvern smellinn á fætur öðrum. Á eftir honum tróðu hinir einu sönnu Huginn og Egill Spegill upp við mikil fagnaðarlæti ungmennanna.

Milli 22:30 og 23:30 var svo öllum boðið í kvöldkaffi í sal Grunnskóla Reyðarfjarðar Tónlistin fékk svo að óma til kl. 00:30 undir vaskri stjórn DJ Bríetar. Því næst var komið að því að fara háttinn eða að minnsta kosti hjá flestum. En alltaf eru þó nokkrir sem láta sig hafa það og vaka alla nóttina í kuldanum.

Að mati starfsmanna Félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar tókst hátíðin ljómandi vel og ekki að heyra annað en að ungmennin hafi skemmt sér vel. Það er nefnilega okkar einlæga von að hátíðin skilji sem mest eftir sig, hafi bæði forvarnargildi og myndi sterk tengsl milli ungmenna um allt Austurland.

Okkur er einnig skylt að taka fram að margar hendur koma að svona hátíð. Þakka ber öllum þeim sem lögðu hönd á plóg og sérstaklega starfsmönnum félagsmiðstöðva af öllu Austurlandi. Ekki ber síst að þakka öllum ungmennunum sem voru sér og hátíðinni til sóma.

Alcoa hefur verið gríðarlega öflugur bakhjarl Kuldabola undandarin ár og hefur fyrirtækið hjálpað til við að halda verðinu niðri fyrir ungmennin. Takk kærlega fyrir okkur!

Með bestu kveðju
Starfsfólk félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar