mobile navigation trigger mobile search trigger
22.03.2021

Leikskólakennarar við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli auglýsir eftir leikskólakennara. Leikskólinn er 2 deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Önnur deildin er á Breiðdalsvík og hin á Stöðvarfirði.  Leikskólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Um er að ræða 100% stöðu.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Starfslýsing starfsmaður leikskóla.pdf

Ef ekki fæst einstaklingur með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsmann með aðra menntun og reynslu.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar gefur Jónas E. Ólafsson, skólastjóri í síma 470-5571/475-9030 eða á jonas@skolar.fjardabyggd.is eða Guðný Jónasdóttir, deildarstjóri í síma 470-5566 eða á gudnyj@skolar.fjardabyggd.is 

Staðan er laus fljótlega. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 15 apríl.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér