mobile navigation trigger mobile search trigger
11.09.2019

Leikskólakennarar við Dalborg

Leikskólinn Dalborg auglýsir eftir leikskólakennurum til starfa. Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 25. september Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is með því að smella hér.

Nánari upplýsingar gefur Madlena Petrova, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á madlena@skolar.fjardabyggd.is og einnig Helena Rós Rúnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 476-1341 eða á helena@skolar.fjardabyggd.is