mobile navigation trigger mobile search trigger
25.02.2021

Leikskólakennari á Stöðvarfirði

Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli auglýsir eftir leikskólakennara. Leikskólinn er 2 deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Önnur deildin er á Breiðdalsvík og hin á Stöðvarfirði. Leikskólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Um er að ræða 100 % stöðu.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Starfslýsing leikskólakennara.

Ef ekki fæst einstaklingur með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsmann með aðra menntun og reynslu. Viðkomandi þarf að getað hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 5. mars 2021. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar gefur Jónas E. Ólafsson, skólastjóri í síma 897-1962 eða á jonas@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér