mobile navigation trigger mobile search trigger
27.10.2020

Sérkennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Sérkennara vantar í afleysingu við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar til vors 2021. Um er að ræða 100% starf, aðallega sérkennslu en einnig getur komið til einhver bekkjarkennsla.

Menntun og æskileg hæfni:

Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.

  • Menntun í sérkennslufræðum æskileg og/eða talsverð reynsla af lestrarkennslu á yngri stigum.
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Ánægja af starfi með börnum

Helstu verkefni:

  • Kemur að skipulagningu kennslu nemenda með sérþarfir.
  • Kennir nemendum sem þurfa sérkennslu í bekk eða utan hans.
  • Heldur utan um gerð einstaklingsnámskráa vegna sérkennslunemenda.
  • Finnur gviðeigandi námsefni og námsgögn í samráði við bekkjarkennara.
  • Kemur að skimunum í lestri og stærðfærði og aðstoðar kennara með úrvinnslu niðurstaðna.
  • Heldur utan um greiningagögn sérkennslu nemenda.

Starfslýsing sérkennara

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Nánari upplýsingar veitir Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 470-9020 eða á eya@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 12. nóvember 2020.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér