mobile navigation trigger mobile search trigger
27.09.2019

Starf frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Atóm í Neskaupstað

Laus er til umsóknar staða frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Atóm í Neskaupstað. Um er að ræða tímavinnustarf sem fer fram aðallega seinnipart dags og á kvöldin.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

Æskilegt er að umsækjendur....
• ...hafi menntun sem nýtist í starfi
• ...hafi reynslu og áhuga á starfi með börnum og ungmennum
• ...hafi færni í samskiptum

Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. Sími: 893-9098. Netfang: bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is 

Umsóknarfrestur er til og með 13. október.

Starfslýsing.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar.