Starfsmann vantar í skólasel Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Starfið felst meðal annars í því að annast gæslu og skapa fjölbreytt viðfangsefni með börnum í lengdri viðveru.
Reynsla og æskileg hæfni:
- ánægja af starfi með börnum
- frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
- snyrtimennska, dugnaður og ábyrgðarkennd
- kostur er að viðkomandi hafi reynslu af starfi með börnun
Um er að ræða u.þ.b. 45%. starf. Vinnutími er frá kl. 13:00-16:30.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttafélags.
Starfslýsing skólaliði I aðstoð í lengdri viðveru
Umsóknarfrestur er til 15. janúar. Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 475-9020. Hægt er að senda tölvupóst á: eya@skolar.fjardabyggd.is