mobile navigation trigger mobile search trigger
07.04.2021

Stuðningsfulltrúi við leikskólann Lyngholt

Stuðningsfulltrúi við leikskólann Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir stuðningsfulltrúa með nemanda

Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 100 % stöður

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Þroska- /iðjuþjálfa menntun eða hafa lokið grunnnámi fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilega menntun.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Umsóknarfrestur er til 3. maí

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér