mobile navigation trigger mobile search trigger
04.02.2020

Styrkir til menningarmála 2020

Menningar- og nýsköpunarnefnd Fjarðabyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála fjárhagsárið 2020. Markmið menningarstyrkja er að styðja og efla menningarstarfsemi í Fjarðabyggð. 

Öllum er heimilt að sækja um í sjóðinn en verkefni verður að hafa skýra tengingu við Fjarðabyggð. Gjaldgeng eru verkefni sem fara fram í Fjarðabyggð, fela í sér kynningu á menningarstarfsemi í Fjarðabyggð eða ef umsjónarmenn eða listamenn hafa búsetu í Fjarðabyggð.

Ekki eru veittir styrkir til náms, reksturs eða viðhalds húsnæðis.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar.

Sótt er um rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar í gegnum Íbúagátt.  Eyðublað má finna undir: Umsóknir - Umsókn um styrk til menningarstarfssemi.

Úthlutunarreglur má nálgast á heimasíðu Fjarðabyggðar.

Nánari upplýsingar veitir Ari Allansson, forstöðumaður Menningarstofu í síma 896 6971 og ari.allansson@fjardabyggd.is