Ungt fólk fætt 2004 og áður getur sótt um átta vikna sumarstarf verkamanns. Starfið heyrir undir þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar.
- Starf við hin ýmsu störf tengdum þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.
- Viðhald gatna.
- Viðhald göngubrúa.
- Verkefni tengd bæjarhátíðum, sláttur og ýmis þjónusta við íbúa.
- Verkefni tengd veitum Fjarðabyggðar.
- Verkefni tengd höfnum Fjarðabyggðar.
Umsóknarfrestur er til og með 25.maí 2020
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ari Sigursteinsson, bæjarverkstjóri, ari.sigursteinsson@fjardabyggd.is eða í síma 470-9000