mobile navigation trigger mobile search trigger
07.08.2020

Þroskaþjálfi óskast til starfa við Leikskólann Lyngholt 

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir þroskaþjálfa til að annast stuðning við nemanda. Um er að ræða 100 % stöðu.  Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum Grænfána skóli og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.  

Menntun, reynsla og hæfniskröfur: 

  • Þroska- / iðjuþjálfamenntun eða hafa lokið grunnnámi fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilegri menntun.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Ábyrgð og stundvísi.
  • Góð íslenskukunnátta. 

Ef ekki fæst einstaklingur með viðkomandi menntun kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu. 

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.

Umsóknarfrestur er til 21. ágúst 
2020. 

Nánari upplýsingar veitir Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257 / 860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is  

Starfslýsing starfsmanns í leikskóla með stuðning   -  Starfslýsing þroskaþjálfa.

Sótt er um starfið á ráðningarvef sveitarfélagsins.