mobile navigation trigger mobile search trigger
19.09.2021

Tilkynning frá aðgerðarstjórn á Austurlandi 19. september

Tekin voru 40 sýni á Reyðarfirði í sýnatöku á Reyðarfirði í gær. Niðurstaða úr greiningu þeirra liggur ekki ennþá fyrir en hún ætti að gera það síðar í dag og verður þá kynnt.

Þau smit sem staðfest hafa verið dreifast víða um leik- og grunnskóla á Reyðarfirði. Erfiðlega hefur gengið að rekja þau enda snerting þeirra víða. Í samráði við rakningarteymi hefur því verið ákveðið að bæði Leikskólinn Lyngholt og Grunnskóli Reyðarfjarðar verði lokaðir á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Í kjölfar síðari skimunar sem fram fer hjá mörgum á þriðjudag verður staðan endurmetin þegar niðurstaða liggur fyrir, sem ætti að vera á miðvikudagsmorgunn.

Tilkynning frá aðgerðarstjórn á Austurlandi 19. september

Boðið verður upp á sýnatöku á Reyðarfirði í dag, sunnudaginn 19. september frá kl. 12 – 13. Þeir sem hafa einhver einkenni eða telja sig hafa verið í samskiptum við smitaðan aðila eru hvattir til að mæta.

Smitrakningarteymi hefur sent frá sér upplýsingar um rétt viðbrögð þeirra sem eru í sóttkví eða hafa á annan hátt verið útsett fyrir smiti, um það hvaða reglur gilda. Viðbúið er að fleiri bætist í þann hóp á næstunni. Á heimasíðunni www.covid.is má finna frekari upplýsingar um reglur sem gilda um sóttkví og einangrun.  

Við erum að sigla í gegnum svolítið öldurót þessa stundina en sjáum til lands. Það mun þó reyna á okkur næstu daga - gætum því öll fyllstu varúðar og höldum áfram að feta okkur saman að lokatakmarkinu.